Velkomin á vef skólans

Barnaskólinn í Hafnarfirði hóf starfsemi sína haustið 2006 sem útibú frá Barnaskólanum í Garðabæ. Eftir fyrsta starfsárið var sótt um sjálfstætt starfsleyfi fyrir skólann til Menntamálaráðuneytisins og frá haustinu 2007 er skólinn rekinn sem sjálfstæður skóli. Í vor var því haldið upp á 10 ára starfsafmæli skólans með pomp og prakt þar sem nemendur og foreldrar/forráðamenn tóku virkan þátt í hátíðarhöldum.

Skólinn samanstendur af 89 börnum foreldrum þeirra og 17 starfsmönnum.

Starf Barnaskólans einkennist af faglegum metnaði, jákvæðni, gleði og lausnamiðun starfsfólks skólans. Frá því að Barnaskólinn var útibú frá Garðabæ hefur skólinn þróað frá ári til árs samkennslu milli árganga. Hefur verið leitast við að styrkja slíka kennslu með tilliti til ólíkra þarfa barna án aðgreiningar eftir aldri og námsgetu. Í ár ætlum við alla leið og erum þess fullviss að allir munu græða, börn, kennarar og foreldrar - því reynslan hefur sýnt okkur að kostirnir við samkennslu eru fleiri en ella. Er hverju barni mætt þar sem það er statt. Um er að ræða félagsmynstur sem sem styrkir ábýrgð, forystu, samhjálp og umburðarlyndi - sem er í takt við það sem við stöndum fyrir og kynjanámskráin okkar kveður á um. Allir græða!

Er það með mikilli tilhlökkun sem við siglum inn í okkar tólfta skólaár og það ellefta sem sjálfstætt starfandi skóli.

Hlökkum við til gefandi og gæfuríks samstarfs með börnum og foreldrum.





Viðbragðsáætlun Barnaskólans í Hafnarfirði.pdf

 
 BSK Hjallabraut,  Hjallabraut 55,  220 Hafnarfjörður 
 Sími: 555-7610, 


Skólaföt
Við höfum fengið 268.096
heimsóknir á vefinn okkar